You are here

Auglýsing um úthlutun 2009

Úthlutun úr Hrafnkelssjóði
Hlutverk Hrafnkelssjóðs er að veita íslenskum stúdentum styrk, þeim er þess þurfa, til að rækja nám við erlenda háskóla og gilda um það eftirfarandi reglur:
 
1. Íslenskir stúdentar, sem hyggja á nám erlendis á meistara- eða doktorsstigi, og hafa lokið íslensku stúdentsprófi með að minnsta kosti annarri einkunn, eiga rétt á að sækja um styrk til sjóðsins.
 
2. Umsækjendur skulu greina frá eftirfarandi:
  - Námsgrein og skóla
  - Staðfestri skólavist
  - Ferilskrá
  - Hvernig námið muni gagnast umsækjanda og framtíðarsýn
  - Hvort umsækjandi njóti styrkja annars staðar frá
  - Afrit prófskírteinis og meðmæli fylgi umsókn
 
3. Sjóðsstjórn hefur ákveðið að upphæð styrks við þessa úthlutun úr Hrafnkelssjóði verði krónur 500.000.
 
4. Stjórn Hrafnkelssjóðs auglýsir styrkveitingu og skulu umsóknir hafa borist í síðasta lagi 13. júlí 2009. Styrkúthlutun verður tilkynnt 13. ágúst 2009 og miðast við þann dag, samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins dagsettri þann 5. febrúar 1930.
 
Umsóknum um styrk árið 2009 úr Hrafnkelssjóði skal skilað til formanns Stúdentaráðs Háskóla Íslands, Hildar Björnsdóttur, á skrifstofu Stúdentaráðs, Háskólatorgi við Sæmundargötu, 101 Reykjavík.