You are here

Auglýsing um úthlutun 2005

Styrkur úr Hrafnkelssjóði

Hlutverk Hrafnkelssjóðs er að veita íslenskum stúdentum styrk, þeim er þess þurfa, til að rækja nám við erlenda háskóla og gilda um það eftirfarandi reglur.

1. Íslenskir stúdentar, sem hyggja á nám erlendis á meistara eða doktorsstigi, og hafa lokið íslensku stúdentsprófi með að minnsta kosti annarri einkunn, eiga rétt á að sækja um styrk til sjóðsins.
 
2. Umsækjendur skulu greina frá eftirfarandi:
  1. Námsgrein og skóla.
  2. Staðfestri skólavist.
  3. Ferilsskrá.
  4. Hvernig námið muni gagnast umsækjanda og framtíðarsýn.
  5. Hvort umsækjandi njóti styrkja annars staðar frá.
  6. Afrit prófsskírteinis og meðmæli fylgi umsókn.
 
3. Sjóðsstjórn hefur ákveðið að upphæð styrks við þessa fyrstu úthlutun úr Hrafnkelssjóði verði krónur 250.000.
 
4. Stjórn Hrafnkelssjóðs auglýsir styrkveitingu og skulu umsóknir hafa borist í síðasta lagi 13. júlí 2005. Styrkúthlutun verður tilkynnt 13. ágúst 2005, og miðast við þann dag, samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins dagsettri þann 5. febrúar 1930.

Umsóknum um styrk árið 2005 úr Hrafnkelssjóði skal skilað til formanns Stúdentaráðs Háskóla Íslands, Elíasar Jóns Guðjónssonar: Félagsstofnun Stúdenta, Stúdentaheimilinu við Hringbraut, 101 Reykjavík.