You are here

Auglýsing um úthlutun 2011

Styrkur úr Hrafnkelssjóði

Hrafnkelssjóður var stofnaður 1930 af hjónunum Ólafíu Guðfinnu Jónsdóttur og Einari Þorkelssyni til minningar um son þeirra Hrafnkel Einarsson stud.polit. (1905-1927).

Styrkur verður veittur úr sjóðnum á ártíð Hrafnkels Einarssonar í ágúst árið 2011.

Hlutverk Hrafnkelssjóðs er að veita íslenskum stúdentum styrk, þeim sem þess þurfa, til að rækja nám við erlenda háskóla og gilda um það eftirfarandi reglur:

Íslenskir stúdentar, sem hyggja á nám erlendis á meistara- eða doktorsstigi, og hafa lokið íslensku stúdentsprófi með að minnsta kosti annarri einkunn, eiga rétt á að sækja um styrk til sjóðsins.

Umsækjendur skulu greina frá eftirfarandi:
• Námsgrein og skóla
• Staðfestri skólavist
• Ferilskrá
• Hvernig námið muni gagnast umsækjanda og framtíðarsýn
• Hvort umsækjandi njóti styrkja annars staðar frá
• Afrit prófskírteinis og meðmæli fylgi umsókn

Sjóðsstjórn hefur ákveðið að upphæð styrks við þessa úthlutun úr Hrafnkelssjóði verði krónur 500.000.

Stjórn Hrafnkelssjóðs auglýsir styrkveitingu og skulu umsóknir hafa borist í síðasta lagi 13. júlí 2011. Styrkúthlutun verður tilkynnt 13. ágúst 2011 og miðast við þann dag, samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins dagsettri hinn 5. febrúar 1930.

Umsóknum um styrk árið 2011 úr Hrafnkelssjóði skal skilað til formanns Stúdentaráðs Háskóla Íslands, Lilju Daggar Jónsdóttur, á skrifstofu Stúdentaráðs, Háskólatorgi 2. hæð, við Sæmundargötu, 101 Reykjavík.

(Auglýsingin á vef Stúdaráðs: http://www.ask.hi.is/id/1101)